Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - FH 30-26 Hjalti Þór Hreinsson í Höllinni á Akureyri skrifar 19. mars 2012 18:30
Akureyri vann góðan og sannfærandi sigur á FH í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-26 sem var síst of stórt. Akureyringar sigldu FH einfaldlega í kaf í fyrri hálfleik. Vörn Akureyrar var frábær með Guðlaug fremstan í flokki. Guðmundur Hólmar var einnig mjög góður. Sveinbjörn datt í stuð fyrir aftan þá og tók 11 skot í fyrri hálfleik. Vörnin sjálf varði einhver fjögur skot í hálfleiknum. Sókn FH var mjög slök. Þeir áttu engin svör við vörn Akureyrar, og virkuðu algjörlega ráðalausir. Ragnar komst ekkert í takt við leikinn í skyttunni. Ólafur Gústafsson reyndi hvað hann gat en var lítið studdur af félögum sínum. Sókn Akureyrar gekk mjög vel, þeir skoruðu sex mörk úr hraðaupphlaupum og átti ekki í neinum vandræðum með að opna vörn FH. Vörnin var reyndar afspyrnu slök, engin grimmd og engin samheldni. Fyrir aftan hana var markvarslan nánast engin. Daníel varði eitt skot og Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson aðeins tvö. Akureyringar voru að skjóta mjög vel á markið. Munurinn á liðunum var 9 mörk í hálfleik, staðan 20-11. Leikurinn var litlu jafnari í seinni hálfleik. Það var ekki fyrr en í lokin sem FH spýtti í lófana og beit frá sér, Akureyri náði annars 10 marka forskoti. Það var svipuð saga og í fyrri hálfleik og sigur Akureyrar aldrei í hættu. Bæði lið skiptu mikið inn á og minnkuðu gæði leiksins umtalsvert í lokin. FH hafði ekki úthald í lokin þrátt fyrir ágæta baráttu en það skoraði þrjú síðustu mörk leiksins. Oddur var frábær í liði Akureyrar en vörnin og Sveinbjörn unnu leikinn. Þegar liðið nær þessari vörn og markvörslu er það illviðráðanlegt. Ólafur Gústafsson spilaði kannski best FH, en náði sér samt ekki nógu vel á strik. Liðið á mikið inni og það skorti bæði upp á að vörn og sókn næðu sér á strik. Þá var markvarslan afar slök. Akureyri er nú aðeins einu stigi á eftir FH þegar liðin eiga tvo leiki eftir og er í fínni stöðu til að komast í úrslitakeppnina.Atli Hilmarsson: Nánast gallalaus fyrri hálfleikur "Þetta er allt annað lið. Ég lofaði því líka að allt annað lið myndi mæta hér í dag og við svo sannarlega spiluðum frábæran leik, fyrri hálfleikur nánast gallalaus. Það er oft erfitt að koma inn í hálfleikinn með svona stöðu, menn fara í það að halda en það var ekki ætlunin." "Við föttuðum það bara allt of seint að þeir voru að stefna á innbyrðis stöðuna, áætlunin var bara að vinna leikinn enda bjóst ekki neinn við því að við færum að sigra með níu hér í kvöld. Fyrir mig er aðalatriðið að komast í úrslitakeppnina, ég hef trú á því að þetta kveiki það mikið í okkur að við förum á þetta flug áfram."Oddur Gretarsson: Ógeðslega gaman "Við höfðum ógeðslega gaman af þessum leik og virkilega gaman að spila hér í kvöld eins og sást á liðinu og öllu húsinu, nema síðustu tíu mínúturnar þegar við fórum að slaka á, samt frábær sigur. Eftir síðasta leik á móti Haukum þar sem við vorum með alveg skelfilega skotnýtingu þá þurfti bara hver og einn að hugsa sinn gang." "Bubbi tók okkur í smá fyrirlestur og við fórum vel í gegnum hvernig við vorum að skjóta og það hefur bara virkað vel. Við mættum vel undirbúnir í þennann leik og það sýndi sig bara, einbeittir frá fyrstu mínútu. Við þurfum að vinna allavega einn leik af því sem eftir er til að klára og fara í úrslitakeppnina, það er Fram næst á útivelli og það er bara annar úrslitaleikur þar sem hart verður barist."Einar Andri Einarsson: Erum í stórhættu á að komast ekki í úrslitakeppnina „Fyrstu 30 mínúturnar í leiknum eru alveg skelfilegar hjá okkur, en seinni hálfleikurinn er mjög góður og vinnum við hann með 5 mörkum. Við bara mættum ekki til leiks, Akureyringar voru frábærir í fyrri hálfleik, spiluðu frábæra sókn og náðu hraðaupphlaupum. Mér fannst við ágætir sóknarlega allan tímann, ef við hefðum fengið betri varnarleik þá hefðum við fengið fleiri hraðaupphlaup í kjölfarið en fyrst og fremst töpum við þessum leik í fyrri hálfleik á ömurlegum varnarleik." FH-ingar mættu grimmari inn í seinni hálfleikinn, snérist umræðan um að stefna að því að minnka þetta niður í þrjú til að vera með betri innbyrðis viðureignir á FH? „Við bentum þeim á það að við yrðum að koma þessu eins mikið niður og við gætum og fyrst og fremst að vinna seinni hálfleikinn, ná þessu niður í í það minnsta fjögur mörk var markmiðið. Það eru þrír leikir eftir í deildinni og allt undir, erum í stór hættu á að komast ekki í úrslitakeppni og það eru vonbrigði. Við eigum HK heima á föstudaginn og við þurfum heldur betur að mæta klárir í hann enda hreinn úrslitaleikur um það hvort liðið fer í úrslitakeppnina."
Olís-deild karla Mest lesið Fylltu í eyðurnar: Vanmetnasti leikmaður deildarinnar? Enski boltinn Einkaviðtal við Carrick: „Hálfgerð tískubylgja sem einkennir fótboltann í dag“ Enski boltinn Fyrirliði Real Madríd þarf að fara í aðgerð á hné Fótbolti Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Körfubolti Markaóður Stefán Ingi eftirsóttur Fótbolti Dagskráin í dag: VARsjáin, Lokasóknin, íslenskur körfubolti og margt fleira Sport Öllu búin skildi snjóspáin raungerast Fótbolti „Varnarleikurinn er bara stórslys“ Enski boltinn Túfa rekinn frá Val Íslenski boltinn „Eitthvað sem við erum óvanar eftir Þjóðadeildina“ Fótbolti Fleiri fréttir Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Donni og félagar björguðu stigi undir lokin Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Guðjón Valur og lærisveinar hársbreidd frá því að vinna Kiel Hlakka til að sjá Viktor Gísla aftur og senda honum skilaboð Neyddar í sömu stöðu og Ísland og límdu melónur á skóna Hatar hvítu stuttbuxurnar Fjölga stórmótum landsliða í handboltanum Allt jafnt í bikarslag íslensku stelpnanna Orri fagnaði í Íslendingaslag í Meistaradeildinni Hjartavandamál halda Reyni frá keppni Stórar breytingar á Evrópukeppnum í handbolta Framarar töpuðu aftur á heimavelli í Evrópudeildinni Magdeburg komst örugglega áfram í sextán liða úrslitin Íslensku strákarnir áberandi í Evrópudeildinni „Stærri og sterkari en liðin sem við þekkjum hérna heima“ Viktor til liðs við frænda sinn og bróður Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Kom að fjórtán mörkum í stórsigri á Leipzig Sjá meira