Grótta vann sinn fyrsta sigur í N1 deild kvenna á tímabilinu í dag þegar Gróttukonur fóru norður og lönduðu 26-25 sigri á móti KA/Þór. Grótta komst fyrir vikið upp fyrir KA/Þór og sendi norðanstúlkur niður í botnsæti deildarinnar. Þetta var einn af þremur leikjum dagsins.
HK vann 36-29 sigur á Haukum á Ásvöllum eftir að hafa verið 21-15 yfir í hálleik. Elín Anna Baldursdóttir skoraði 9 mörk fyrir HK úr 13 skotum en sex marka hennar komu í fyrri hálfleiknum. HK komst upp í 3. sætið með þessum sigri en liðið á í harðri baráttu við ÍBV og Stjörnuna um tvö síðustu sætin inn í úrslitakeppnina.
Fram vann síðan 26-21 sigur á Val í toppslag deildarinnar fyrr í dag.
Úrslit og markaskorarar í leikjum dagsins:
KA/Þór - Grótta 25-26 (13-12)
Mörk KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 6, Ásdís Sigurðardóttir 6, Kolbrún Einarsdóttir 5, Erla Tryggvadóttir 3, Jóhanna Snædal 2, Sunnefa Nielsdóttir 2, Katrín Vilhjálmsdóttir 1.
Varin skot: Frida Petersen 13.
Mörk Gróttu: Unnur Ómarsdóttir 5, Tinna L Gautadóttir 5, Sunna M Einarsdóttir 4, Sóley Arnarsdóttir 4, Björg Fenger 4, Elín H Jónsdóttir 2, Laufey Á Guðmundsdóttir 2.
Varin skot: Heiða Ingólfsdóttir 14.
Haukar - HK 29-36 (15-21)
Mörk Hauka: Ásta Björk Agnarsdóttir 5, Viktoría Valdimarsdóttir 5, Marija Gedroit 5, Ragnheiður Sveinsdóttir 4, Karen Helga Sigurjónsdóttir 3, Silja Ísberg 3, Ásthilur Friðgeirsdóttir 3, Díana Sigmarsdóttir 1.
Varin skot: Sólveig Björk Ásmundardóttir 9, Rakel Kristín Jónsdóttir 2.
Mörk HK: Elín Anna Baldursdóttir 9, Brynja Magnúsdóttir 7, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 6, Heiðrún Björk Helgadóttir 4, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Elva Björg Arnarsdóttir 2, Arna Björk Almarsdóttir 2, Harpa Baldursdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 11, Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir 4.
Fram - Valur 26-21 (14-10)
Mörk Fram (skot): Elísabet Gunnarsdóttir 9/5 (9/5), Stella Sigurðardóttir 7 (16), Ásta Birna Gunnarsdóttir 5 (6), Sunna Jónsdóttir 2 (2), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2 (7), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1 (2), Birna Berg Haraldsdóttir (2),
Varin skot: Guðrún Ósk Maríasdóttir 15 (36/1, 42%),
Mörk Vals (skot): Kristín Guðmundsdóttir 6/1 (13/1), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5 (9), Ágústa Edda Björnsdóttir 3 (6), Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 3 (6), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2 (3), Karólína B. Gunnarsdóttir 1 (1), Dagný Skúladóttir 1 (2),
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 16 (34/2, 47%), Sunneva Einarsdóttir 2 (10/3, 20%).
