Innlent

Jóel litli kominn heim

Jóel Færseth, sem fæddist á Indlandi með hjálp staðgöngumóður og hefur verið fastur þar í landi frá því fyrir jól er kominn heim til Íslands. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og hefur eftir Helgu Sveinsdóttur móður drengsins að það sé ólýsanleg tilfinning að vera komin heim.

Fjölskyldan naut aðstoða starfsmanns íslenska sendiráðsins við að komast frá Indlandi til Frankfurt á dögunum en til Íslands komu þau síðdegis í gær.




Tengdar fréttir

Ríkisborgararéttur Jóels flækti málin enn frekar - Vigdís vill fund

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði í dag eftir því að fulltrúar innanríkisráðuneytisins, sem hafa með ríkisborgaramál að gera, og fulltrúar utanríkisráðuneytisins sem hafa með útgáfu vegabréfa að gera, verði kallaðir fyrir allsherjarnefnd.

Ráðuneytið gerir allt til að fá Jóel heim

„Þetta mál hefur ekki strandað í ráðuneytinu, heldur í indverskri stjórnsýslu,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um mál íslensku fjölskyldunnar sem er föst á Indlandi. „Innan- og utanríkisráðuneytin hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að greiða úr málinu hið fyrsta. Við erum að vonast til þess að niðurstaða fáist innan skamms.“

Ráðuneytið bíður eftir upplýsingum frá Indlandi

Innanríkisráðuneytið bíður eftir viðbrögðum indverskra stjórnvalda við fyrirspurn ráðuneytisins um forsjá Jóels Færseth Einarssonar, sem hefur verið fastur ásamt foreldrum sínum á Indlandi síðan í nóvember. Vonast er til að Jóel geti fengið íslenskt vegabréf þegar upplýsingar frá indverskum stjórnvöldum hefur borist.

Staðgöngumóðir Jóels fékk 300 þúsund

Indverska konan sem gekk með barn fyrir íslenskt par nýlega, vill halda staðgöngumæðrun áfram. Hún fékk um þrjú hundruð þúsund krónur í sinn hlut. Staðgöngumæðrun fer mjög vaxandi á Indlandi og eru dæmi um að greiðsla fyrir meðgöngu nemir margföldum árslaunum indverskrar fjölskyldu.

Jóel litli kominn með vegabréf

Íslensk stjórnvöld hafa gefið út vegabréf fyrir Jóel Færseth Einarsson, sem hefur verið fastur á Indlandi ásamt foreldrum sínum frá því fyrir jól. Viðbúið er að þau komist heim til Íslands á næstu dögum.

Ráðuneytið vísar á stjórnvöld erlendis

Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir gögnum frá Indlandi sem varða Jóel Færseth Einarsson, sem fékk íslenskan ríkisborgararétt í lok síðasta árs. Þrátt fyrir það hefur drengurinn enn ekki fengið vegabréf til að snúa heim til Íslands. Fulltrúar ráðuneytisins vildu ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið, en yfirlýsing var birt á vef þeirra í gær.

Yfirvöld brjóta gegn réttindum Jóels

„Ég skil ekki hvers vegna innanríkisráðuneyti Ögmundar Jónassonar er ekki búið að gefa út vegabréf fyrir drenginn svo hann geti snúið heim til Íslands," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um mál Jóels Færseth Einarssonar, sem hefur verið fastur ásamt foreldrum sínum á Indlandi síðan í nóvember. Þingmaðurinn segir alla sjá hversu fráleitt það sé af íslenskum stjórnvöldum að þverskallast við að gefa út vegabréf fyrir Jóel í ljósi þeirra réttinda sem stjórnarskráin eigi að tryggja honum eftir að hann varð íslenskur ríkisborgari.

„Við gátum ekki hugsað okkur að lifa barnlausu lífi"

„Við sáum ekki fram á að geta eignast barn á næstu árum og við gátum ekki ekki hugsað okkur að lifa barnlausu lífi. Þannig að við fórum að hugsa hvað og hvort við gætum gert sjálf. Við vissum að íslensk pör hafa farið erlendis og eignast börn með hjálp staðgöngumóður. Við erum alls ekki þau fyrstu,“ segir Helga Sveinsdóttir sem er föst ásamt eiginmanni sínum, Einari Þór Færseth, þar sem þau eignuðust á síðasta ári drenginn Jóel Færseth með aðstoð staðgöngumóður. Rætt var við Helgu í Kastljósi í kvöld.

Voru viðstödd fæðinguna - bíða viðbragðra indverskra stjórnvalda

Foreldrar Jóels Færseths Einarssonar, sem fæddist af indverskri staðgöngumóður fyrir skömmu, segjast lítil samskipti hafa haft við staðgöngumóðurina, en hafi þó verið viðstödd fæðinguna. Þau eru föst á Indlandi, en beðið er viðbragða indverskra stjórnvalda um forræði yfir drengnum og ríkisfang.

Jóel á leiðinni heim

Jóel Einarsson, litli drengurinn sem fæddist á Indlandi fyrir jól, er á leið heim til Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×