Viðskipti innlent

Stefnt að nauðasamningum Kaupþings á vormánuðum

Kaupþing Steinar Guðgeirsson og félagar hans í skilanefnd Kaupþings munu hætta störfum um áramót þegar nefndin verður lögð niður. Nú er ljóst að stefnan er sett á að koma þrotabúinu í hendur kröfuhafa sem fyrst.fréttablaðið/GVA
Kaupþing Steinar Guðgeirsson og félagar hans í skilanefnd Kaupþings munu hætta störfum um áramót þegar nefndin verður lögð niður. Nú er ljóst að stefnan er sett á að koma þrotabúinu í hendur kröfuhafa sem fyrst.fréttablaðið/GVA
Slitastjórn Kaupþings stefnir að því að hefja formlegt nauðasamningaferli bankans á öðrum ársfjórðungi ársins 2012. Nauðasamningarnir miða að því að gera bankann að eignarhaldsfélagi í eigu kröfuhafa hans. Þetta kemur fram í kynningu sem slitastjórn bankans hélt fyrir kröfuhafa hans 14. desember.

Í kynningunni kemur fram að „vinna við endurskipulagningu Kaupþings hf. og mögulegan nauðasamning er enn í fullum gangi og mun halda áfram á nýju ári. Sú vinna verður áfram unnin í nánu samstarfi við Morgan Stanley, sem fjármálaráðgjafa, White&Case, sem lagalegan ráðgjafa og Deloitte, sem skattalegan ráðgjafa [...]. Slitastjórnin stefnir að því að hefja formlegt nauðasamningsferli á öðrum ársfjórðungi 2012". Slitastjórn bankans telur að hægt yrði að ljúka slitameðferð á frekar skömmum tíma með framlagningu nauðasamninga.

Gangi áformin eftir verður Kaupþing að eignarhaldsfélagi undir stjórn kjörinnar stjórnar kröfuhafa bankans. Í kjölfarið mun félagið losna undan þeim lagahömlum sem hvíla á starfsemi skilanefnda og slitastjórna, kröfuhafarnir fá aukið svigrúm til að hámarka arð af reiðufjársjóðum og hámörkun virðis verður höfð að leiðarljósi með innheimtu fjársölu eigna og lausna annarra eigna.

Á meðal eigna sem verða í eigu eignarhaldsfélagsins Kaupþings verður 86% hlutur í Arion banka, þriðja stærsta banka Íslands.

Í kynningum sem haldnar hafa verið fyrir kröfuhafa Kaupþings um málið segir einnig að í kjölfar nauðasamninga yrði Kaupþing móðurfélag sem staðsett yrði á Íslandi og gæti gefið út nýja gerninga. Ef kröfuhafarnir, sem nýir eigendur félagsins, myndu telja það fýsilegt að flytja aðsetur Kaupþings á milli landa þá væri það þó gerlegt.

Grundvöllur að mögulegri tillögu um nauðasamninga verður áreiðanleikakönnun um eignir Kaupþings og greining á þeim eins og þær voru um síðustu áramót. Houlihan Lokey Limited og Deutsche Bank Advisory Service unnu þá könnun og skiluðu henni af sér í júní síðastliðnum. - þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×