Ragga og Dísa syngja í Fríkirkjunni 15. desember 2011 14:00 Kasólétt söngkona Ragnheiður Gröndal vonast til að sjá sem flesta í Fríkirkjunni á sunnudagskvöld.
Tvær hæfileikaríkar söngkonur leiða saman hesta sína í Fríkirkjunni á sunnudaginn. Sú þriðja bætist í hópinn þegar líður á kvöldið. „Við ákváðum að kýla bara á þetta í öllu jólatónleikaflóðinu,“ segir Ragnheiður Gröndal söngkona. Blásið verður til tvöfaldra útgáfutónleika í Fríkirkjunni sunnudaginn 18. desember klukkan 20.30. Ragnheiður Gröndal flytur lög af nýjustu plötu sinni, Astrocat Lullaby, og dúettinn Song for Wendy, skipaður þeim Bryndísi Jakobsdóttur og Mads Mouritz, fagnar fyrstu plötu sinni, Meeting Point. Ragnheiður á von á sínu fyrsta barni í febrúar en lætur það ekki stoppa sig frá tónleikahaldi. „Hugmyndin að því að gera þetta saman kom frá Dísu sem var búin að ákveða að halda útgáfutónleika en vildi gera eitthvað meira úr því. Hún hafði samband við mig og ég ákvað að slá til. Upphaflega ætlaði ég ekkert að halda útgáfutónleika strax, ég er kasólétt og ætlaði að taka því rólega á aðventunni, en það verður gaman að gera þetta saman. Ég held að atriðin okkar passi vel saman og að þetta verði notaleg stund.“ Tónleikarnir verða ekki lausir við aðventublæinn því þegar Ragga og Dísa hafa kynnt plöturnar fyrir tónleikagestum munu þær flytja eftirlætis jólalög sín ásamt vinkonu sinni, Sigríði Thorlacius. Þetta verður í fyrsta sinn sem þessar þrjár hæfileikaríku söngkonur koma einar fram, en áður hafa þær sungið bakraddir saman fyrir Moses Hightower. Tríóið kallar sig Jólabjöllurnar og Ragnheiður tekur vel í það að þær gætu orðið eins konar Borgardætur næstu kynslóðar söngkvenna. „Það verður spennandi fyrir okkur að syngja þrjár saman. Við erum allar með ólíkar raddir en samt áþekkar þannig að þær blandast held ég mjög vel saman. Það væri gaman að gera eitthvað meira úr þessu.“ Miðaverð á tónleikana er 1.500 krónur í forsölu á Miði.is og 2.000 krónur við inngang. bergthora@frettabladid.is
Lífið Tónlist Mest lesið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Fleiri fréttir Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira