Fátt er verra en að vera fastur í umferðarsultu alla aðventuna. Það má gera ýmislegt til að koma í veg fyrir að eilíft stress og tímahrak verði einu minningarnar um aðventuna í ár.
Jólagjafir með fyrirvara
Flestar góðar húsmæður og -feður vita að jólagjafir skal kaupa inn jafnt og þétt en ekki allar á Þorláksmessu. Það sem hins vegar margir flaska á er að best er að sinna einnig innpökkun jafnt og þétt því það er ærið verk að eiga hana alla eftir nokkrum dögum fyrir jól. Gott ráð: sprautið hárlakki yfir gjafaborða og slaufur til að það haldist betur fram að afhendingardegi.
Útvarp á kvöldin
Það er ástæða fyrir því að margir slappa betur af í sumarbústað án sjónvarps. Einfalt ráð fyrir afslappaðri aðventu er að reyna að hafa sem minnst kveikt á sjónvarpinu í desember. Hlustið þess í stað á útvarpssögur, klassíska tónlist, fallega jólasálma og hljóðbækur með íslenskum eða innlendum skáldsögum eða jafnvel Íslendingasögum. Veljið ykkur einn klukkutíma í mesta lagi til að hafa kveikt á sjónvarpinu.
Reynið að keyra sem minnst
Umferðin getur verið afar þung í desember og heilmikil orka sparast við það að þurfa ekki að svitna í umferðarhnútum og passa upp á sig og aðra. Það er fullkomin afslöppun að láta þaulvana strætisvagnabílstjóra sjá um aksturinn og njóta útsýnisins. Nú, eða fá sér góðan göngutúr. Mælum með að bakpoki sé tekinn með í bæjarferðina undir jólainnkaupin, með góðum stuðningi. Ekki gleyma því svo að það má nota póstþjónustu til að koma pökkum á milli bæjarhluta.
Takið góða hvíld á milli verka
Setjið inn í stundarskrána pásur þegar dagarnir eru þéttbókaðir í verkum og vinnu. Ekki hugsa um vinnu eða hvað á eftir að gera í þessum hléum heldur hreinsið hugann, jafnvel með góðri tónlist eða slökun sem hentar. Tölvuleikur, kapall eða bók er ekki vitlaus hugmynd. -jma
Afslöppuð aðventa - svona minnkar þú desemberstressið
