„Ég veit ekki hvort það er tilviljun eða dulin spennufíkn, en ég fer oft af stað í breytingar heima hjá mér korter fyrir jól. Það er sennilega því þá hefur maður jólin til að reka á eftir manni sem einhverskonar „skiladag", segir útvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, spurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar.
„Ég skal alveg viðurkenna að það er voða gaman að fara í breytingar heima hjá sér en það þarf oft einhvern eða eitthvað til að ýta manni af stað og í þessu tilfelli var það dóttir mín sem vildi ekki hafa bleika litinn í herberginu sínu lengur," segir Gulli.

Eftirminnileg jól
„Ætli að séu ekki jólin sem yngsti sonur okkar fæddist, Ágústa konan mín var sett 19. des en á aðfangadag var hann ekki enn kominn í heiminn. Hún mátti ekki hósta þá hélt ég að hún væri að fara fæða, en svo fór hún af stað um nóttina og hann fæddist á jóladag. Pabbi hans er líka smiður en móðir hans heiti Ágústa ekki María," segir Gulli hlæjandi.
Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Frost, snjór, piparkökur, Ó helga nótt með Agli Ólafs, jólaljós og smá áhyggjur af jólagjöfunum. Annars er sú venja hér á heimilinu að pakka jóladiskum og jólamyndunum (DVD) með skrautinu þannig að þegar að kassarnir eru opnaðir þá er oft sest niður og horft á skemmtilegar myndir sem tengjast jónunum."
Stúfur birtist öll jól
„Undanfarin jól hefur verið hamborgarahryggur á aðfangadag, en núna verður þríréttað því ég fékk gefins tvær rjúpur og ég mun borða þær báðar aleinn. Yngsti sonur minn vill nautalund og restin hamborgarahrygg þannig að það verður fjör í eldhúsinu þann daginn," segir Gulli að lokum. - elly@365.is