Norðurslóðir verða í kastljósi heimsins 1. október 2011 02:00 Störe og Össur Utanríkisráðherrar Noregs og Íslands á Akureyri í vikunni. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir það táknrænt að prófessorsstaðan, sem helguð verður norðurslóðarannsóknum, verði í Háskólanum á Akureyri, því þar er helsta miðstöð norðurslóðarannsókna hér á landi. „Við undirstrikuðum sérstaklega mikilvægi Akureyrar með því að þar hófst hin opinbera heimsókn hans. Þar tók ég á móti honum og þar verður prófessorsstaðan, kennd við norska landkönnuðinn Friðþjóf Nansen.“ Þessi staða verður einnig tengd Háskóla norðurslóða, University of the Arctic, sem starfar í öllum Norðurlandaríkjunum auk Rússlands, Kanada og Bandaríkjanna. Ráðherrarnir samþykktu einnig að styrkja Íslendinga til vísindasamstarfs á Svalbarða, auk þess sem settur verður upp sjóður til að styrkja undirbúning í þátttöku Íslendinga í ýmsum rannsóknum á norðurslóðum. „Það er alveg ljóst að kastljós heimsins er að beinast að norðurslóðum. Þær verða gríðarlega mikilvægar á næstu áratugum bæði vegna þess að nýjar siglingaleiðir munu opnast en líka vegna þess að bráðnun íssins mun opna svæði þar sem vitað er að miklar auðlindir er að finna, bæði olíu og gas. Við vorum hins vegar algerlega sammála um að ekki verði hægt að ráðast í vinnslu þeirra nema hafa ströngustu varúðarreglur og móðir náttúra verði á öllum stigum látin njóta vafans.“
Fréttir Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Innlent Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Innlent Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Innlent Leyfið heyrir sögunni til Innlent Fleiri fréttir Með áhyggjur af stöðu hagkerfisins Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum Ætla að senda tíu þúsund hermenn að landamærunum Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Sólarorka atkvæðameiri en kolabrennsla árið 2024 Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Enn einn gróðureldurinn ógnar Los Angeles Trump náðar eiturlyfjabarón huldunetsins Ný lög sögð leyfa giftingar allt að níu ára stúlkna Trump ósáttur við bón biskups um miskunn Söguleg snjókoma í suðurhluta Bandaríkjanna Verður forsætisráðherra Írlands á ný Túaregar björguðu spænskum manni úr klóm Íslamska ríkisins 76 látnir eftir eldsvoðann í Tyrklandi Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir Kæra ákvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki“ Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka „Við erum Grænlendingar, við erum ekki Bandaríkjamenn eða Danir“ Tilnefning Hegseths samþykkt úr nefnd Náðaði fólk sem beitti lögregluþjóna ofbeldi Yfir níu kílómetrum á sekúndu á vindasömustu plánetunni Gera umfangsmikið áhlaupa á Vesturbakkanum Dularfullar kúlur innihalda ösku, mettaðar fitusýrur og saurgerla Segir Hitler-samanburð þreyttan Gera ráð fyrir að þúsundir líka sé að finna í húsarústunum 66 látnir í bruna á tyrknesku skíðahóteli Fjöldi fólks í óvissu og óöryggi eftir fyrsta dag Trump í embætti Sjá meira