Stofna andófsfólki í hættu 3. september 2011 02:00 Julian Assange hefur verið gagnrýndur fyrir að birta skjölin óritskoðuð.nordicphotos/AFP
Lekasíðan Wikileaks hefur nú birt öll bandarísku sendiráðsskjölin, sem hún hóf birtingu á í lok síðasta árs í samvinnu við nokkra helstu fjölmiðla heims. Samstarfsfjölmiðlar hennar, virt dagblöð á borð við New York Times, Guardian og Le Monde, gagnrýna það að flest skjölin séu nú birt án þess að þurrka út viðkvæmar upplýsingar, sem geta stefnt einstaklingum í hættu. Meðal annars geta stjórnvöld í löndum á borð við Kína, Búrma og Rússland auðveldlega fundið í skjölunum nöfn stjórnarandstæðinga og andófsmanna, með afleiðingum sem enginn veit hverjar verða. Birting skjalanna hafði gengið hægt, enda var þess lengi vel gætt að birta þau ekki fyrr en samstarfsfjölmiðlarnir hefðu farið í gegnum þau og hreinsað út þessar viðkvæmu upplýsingar. Á Twitter-síðu Wikileaks segir að ekki hafi verið um annað að ræða en að birta öll skjölin, því afrit þeirra væru þegar komin í umferð manna á milli. Breska blaðinu Guardian hefur verið kennt um að birta lykilorð, sem veitti hverjum sem er aðgang að skjölunum. Fulltrúar Guardian segja hins vegar að á Wikileaks hefðu menn ekki átt að endurnýta gamalt lykilorð fyrir þetta viðkvæmar upplýsingar.- gb
Fréttir Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Sjá meira