Palli rokseldi í Hörpunni 16. júní 2011 10:30 Tekur sinn tíma Páll Óskar Hjálmtýsson segir það taka sinn tíma fyrir tónlistarmenn að venja sig við Hörpu og forsvarsmenn Hörpu að venja sig við tónlistarfólkið. Hann segir að ekki eigi allt heima í Hörpu.
12 tónar eru með einkaleyfi fyrir sölu á varningi í Hörpu og Páll Óskar Hjálmtýsson varð því að semja sérstaklega við þá þegar hann seldi Silfursafnið fyrir tónleika sína með Sinfóníuhljómsveitinni. Ýmsir hafa gagnrýnt þetta fyrirkomulag en Palli kvartar ekki. „Ég og 12 tónar náðum bara lendingu í þessu máli enda eru þeir með einkarétt á sölu varnings í húsinu,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson poppstjarna. Páll hélt glæsilega tónleika í Hörpu ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í síðustu viku og hafði til sölu Silfursafnið sitt, sem kom út 2008. Samkvæmt Tónlistanum, sem er birtur hér framar í blaðinu, seldi Páll vel af plötunni í kringum tónleikana. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var samningur Páls og 12 tóna þess efnis að verslunin fengi helminginn af sölunni og Páll hinn helminginn, en söngvarinn stóð sjálfur straum af útgáfunni á sínum tíma. Þetta fyrirkomulag í Hörpu hefur verið gagnrýnt en Páll vildi ekki lýsa yfir neinni óánægju með það, viðurkenndi vissulega að í fullkomnum heimi hefði hann fengið allt í sinn vasa. „En auðvitað er betra að selja þetta á þennan hátt en að láta diskinn daga uppi inni á lager. Þessi eintök skipta auðvitað ekki neinu máli í hinu stóra samhengi því Silfursafnið hefur þegar selst í nítján þúsund eintökum.“ Og söngvarinn, sem verður að teljast skærasta stjarna íslenska poppsins um þessar mundir, vill að menn fari að slíðra sverðin í gagnrýni sinni á Hörpu. „Við verðum bara að læra á húsið og allt sem tengist því í litlum skrefum, læra inn á hljómburð og hljóðkerfi og tala heiðarlega út um hlutina. Og gera okkur grein fyrir því að það passar kannnski ekki allt inn í Hörpu.“ Eiður Arnarson, útgáfustjóri hjá Senu, segir ekkert óeðlilegt í sjálfu sér við fyrirkomulagið á plötusölu í Hörpu. „Þetta er bara heildsali sem selur smásala sem aftur selur neytandanum. Menn geta síðan haft sína skoðun á einkaréttindunum,“ segir Eiður. Ákveðin hefð hefur hins vegar verið fyrir því að tónlistarmenn hafi sjálfir selt plötur sínar á tónleikum, til að mynda úti á landi og á tónleikum í Reykjavík. Þeir geta hins vegar ekki stundað slíka iðju ef þeir kjósa að halda tónleika í Hörpu. Einyrkjar eins og Páll Óskar og Mugison, sem báðir gefa út eigin verk, verða því að sætta sig við að semja við 12 tóna eins og Páll gerði ef þeir ætla að selja nýjustu afurðir sínar í kringum tónleika. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Lífið Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Lífið Fleiri fréttir Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira