Hildigunnur úr leik í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2011 08:00 Hildigunnur Einarsdóttir Verður ekkert meira með á þessu tímabili. Fréttablaðið/anton
Deildarmeistarar Vals í N1-deild kvenna urðu fyrir miklu áfalli í vikunni þegar Hildigunnur Einarsdóttir meiddist illa á hné á æfingu. Hún verður af þeim sökum ekkert með Valskonum í úrslitakeppninni sem hefst eftir aðeins eina viku. „Það eru 99 prósent líkur á að þetta sé krossbandaslit. Hún verður ekkert með í úrslitakeppninni,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Valsliðsins. „Það var ein mínúta eftir af æfingunni og hún var að finta. Systir hennar ökklabrotnaði í fyrra þannig að þetta leggst á sömu fjölskylduna,“ sagði Stefán sem segir Hildigunni hafa spilað mjög vel í vetur. „Hún hefði örugglega farið inn í landsliðið í vor og hún stefndi líka á það að fara út þannig að þetta er gríðarlegt áfall. Hún kemur samt örugglega sterkari til baka,“ segir Stefán. Valsliðið fékk aðeins á sig tæplega 19 mörk að meðaltali í deildinni og þar var Hildigunnur vel liðtæk. „Við þurfum að finna einhverja lausn við brotthvarf hennar því hún er búin að vera lykilmaður í okkar vörn. Við eigum enn þokkalega möguleika á titlinum en þetta er áfall fyrir okkur.“
Olís-deild kvenna Mest lesið Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Írland - Ísrael | Seinni leikurinn sem enginn vildi spila Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Sjá meira