Áhrif koma alls staðar frá 9. mars 2011 10:15 Vignir Hlöðversson, yfirmatreiðslumeistari á Grand Hóteli. Mynd/Pjetur
Gómsætar þorskkinnar og -tunga verða meðal annars á matseðli Grand Hótels á Food and Fun. „Að þessu sinni fáum við til okkar bandaríska matreiðslumeistarann David Britton, sem hefur áður glatt íslenska matargesti á Silfri. Hann er frægur fyrir einstaka hæfileika í eldhúsinu og starfar á Lola Restaurant, margverðlaunuðu veitingahúsi Michaels Ginor á Long Island í New York," segir Vignir Hlöðversson, yfirmatreiðslumeistari á Grand Hótei, um gestakokk sinn á Food and Fun að þessu sinni. David er aðdáendum matreiðsluþátta að góðu kunnur þar sem hann hefur fengist við ýmsar þrautir í eldhúsinu með kollega sínum Robert Irvine í Dinner Impossible á sjónvarpsstöðinni Food Network síðustu ár, en nú vinna þeir einmitt að 8. seríu þáttarins. „David er stjörnukokkur sem lærði snemma að taka til hendinni á æskuárunum í Arizona því móðir hans krafðist þess að börn hennar lærðu ung að bjarga sér í eldhúsinu. Því spreytti hann sig ungur á skólanestinu yfir í heilu fjölskyldumáltíðirnar og heimatilbúinn ís um helgar, en hann er snillingur í eftirréttum og verður spennandi að sjá hvað hann gerir nú," segir Vignir um þennan heimskokk sem starfað hefur á mörgum af bestu hótelum Bandaríkjanna og sérmenntaði sig í alþjóðlegri matarmenningu á námsárunum, með áherslu á evrópska matargerð. „Heimspeki Davids er einföld, en hún sú er að maður sé ævina út að ná tökum á matargerð þar sem áhrif koma alls staðar frá, sé maður á annað borð opinn fyrir nýjum hugmyndum. Hann er því spenntur fyrir að koma aftur til Íslands, elda úr fersku, íslensku hráefni og njóta íslenskrar gestrisni, eins og gestir Grand Hótels munu upplifa á Food and Fun," segir Vignir og gefur upp freistandi fjögurra rétta matseðil Davids Britton: „Í forrétt verður foie gras (gæsalifur), í aðalrétt þorskkinnarog -tunga, og íslenskt lamb á tvo vegu og eftirréttur sem kemur á óvart."
Food and Fun Veitingastaðir Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið