Ný áætlun: Skuldir Grikkja skornar niður um þriðjung 31. janúar 2011 10:42
Ný áætlun til að losa Grikkja undan óbærilegri skuldabyrði sinni er nú á borðinu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafa unnið saman að þessari áætlun en greint er frá málinu í grísku dagblaði sem og Financial Times. Í höfuðdráttum gengur áætlunin út á að skera niður 330 milljarða evra skuldir Grikkja um þriðjung. Þetta verði gert meðal annars með því að Grikkland fær lán frá björgunarsjóði Evrópusambandsins og notar þau lán til að kaupa útistandandi ríkisskuldabréf sín á 75% af nafnvirði. Tapið taka seðlabanki Evrópu og fjárfestar á sig. Þá verði lánstími á öðrum skuldum lengdur verulega. Þannig lengist lánstíminn á 110 milljarða evra neyðarláni Grikkja frá ESB úr þremur árum í 30 ár. Og eigendur grískra ríkisskuldabréfa verða beðnir um að lengja lánstíma þeirra í 15 til 20 ár. Fram kemur að þessi áætlun njóti stuðnings bæði Angelu Merkel kanslara Þýskalands og Wolfgang Schäuble fjármálaráðherra hennar. Í Financial Times segir ennfremur að þessi lausn gæti líka náð yfir skuldir Írlands.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira