Snæfell síðasta liðið inn í sextán liða úrslit | Vann Val á Hlíðarenda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2011 21:03 Jón Ólafur Jónsson Mynd/Vilhelm
Snæfellingar tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum Powerade-bikars karla í körfubolta með því að vinna 18 stiga sigur á Valsmönnum, 95-77, í Vodfonehöllinni á Hlíðarenda í kvöld. Snæfell var með gott forskot allan leikinn og sigurinn var aldrei í hættu. Jón Ólafur Jónsson fór á kostum í kvöld og var með 33 stig á 32 mínútum en hann hitti úr 7 af 13 þriggja stiga skotum sínum í leiknun. Quincy Hankins-Cole var með 22 stig og Marquis Sheldon Hall skoraði 16 stig. Garrison Johnson skoraði 24 stig fyrir Val og Igor Tratnik var með 17 stig og 17 fráköst. Snæfell vann fyrsta leikhlutann 23-13 en Valsmenn náðu að minnka muninn í sex stig í öðrum leikhluta, 27-33. Snæfell endaði fyrri hálfleikinn hinsvegar á 11-5 spretti og leiddi með tólf stigum í hálfleik, 44-32. Valsmenn héngu í Snæfellingum í seinni hálfleiknum en sigurinn var þó aldrei í hættu enda Hólmarar alltaf með ágætt forskot. Munurinn varð síðan 18 stig í lokin. Snæfell var síðasta liðið til að komast í pottinn þegar dregið verður í næstu umferð á morgun. Hin fimtán liðin í 16 liða úrslitum eru: Fjölnir, Tindastóll, Keflavík, KR, Grindavík, Njarðvík, Hamar, Stjarnan, KFÍ, Breiðablik, Þór Akureyri, Njarðvík-b, Höttur, Skallagrímur og Þór Þorlákshöfn.Valur-Snæfell 77-95 (13-23, 19-21, 21-22, 24-29)Valur: Garrison Johnson 24/6 fráköst, Igor Tratnik 17/17 fráköst, Austin Magnus Bracey 11, Ragnar Gylfason 11, Birgir Björn Pétursson 10/15 fráköst, Alexander Dungal 4/5 fráköst.Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 33/8 fráköst, Quincy Hankins-Cole 22/8 fráköst, Marquis Sheldon Hall 16/8 fráköst, Ólafur Torfason 8, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5/4 fráköst, Guðni Sumarliðason 3, Þorbergur Helgi Sæþórsson 3, Sveinn Arnar Davidsson 3, Hafþór Ingi Gunnarsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Körfubolti Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sport Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Heilsan ástæða þess að Árni lætur af störfum Betur fór en á horfðist hjá Martin sem virtist illa meiddur „Hef meiri áhyggjur af þessu með Kára“ Kallaði Giannis barn eftir að hann neitaði að taka í höndina á honum Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Sjá meira