Miðsvæðin í Blöndu Karl Lúðvíksson skrifar 14. nóvember 2011 09:22 Frá svæ´ði 2 í Blöndu. Glæsilegt veiðisvæði en ekki mikið stundað Mynd af www.lax-a.is
Svæði 2 og 3 í Blöndu voru nokkuð góð í sumar, alls komu um 400 laxar á land. Að vísu eru allnokkrar stangir á svæðunum eða 9 stangir í allt – en fátítt var að það væru allar bókaðar. Einnig verður að líta til þess að veiðin á sér nánast öll stað fyrir mánaðarmót júlí og ágúst, dagveiðin er því nokkuð góð á því tímabili, sérstaklega eftir 10 júlí. Þessi svæði voru töluvert vinsælli í sumar en oft áður og með aukinni ásókn hafa veiðitölur hækkað. Ekki fylgir hús með svæði 2 en gamla veiðihúsið við Móberg í Langadal hefur fylgt svæði 3 undanfarin ár. Þeir sem eru að leita veiði þar sem fara saman sterkir laxar, hóflegt verðlag og ágæt veiðivon ættu að staldra við þessi svæði. Því þó þau geti verið krefjandi, geta þau einnig verið mjög gjöful. Birt með góðfúslegu leyfi Lax-Á
Stangveiði Mest lesið Bleikur dagur og bleikar veiðiflugur Veiði Voru við veiðar í Tungulæk þegar gosið hófst Veiði Haukadalsá og Laxá að gera gott í Dölunum Veiði Ótrúlegar vikutölur úr laxveiðiánum Veiði Stórlaxahelgi í Blöndu Veiði Þegjandi á Harley Davidsson í Laugakvörn Veiði Breyting á veiðisvæði Sandár Veiði Náði 12 punda urriða í Kleifarvatni Veiði Leirvogsá er komin í gang Veiði Rjúpnaveiðin byrjar á morgun Veiði