Hundruð ungmenna krefjast þess að Justin Bieber komi til landsins 10. september 2011 16:22
Fimm til sexhundruð aðdáendur poppstjörnunnar Justin Bieber, ganga nú fylktu liði frá Hlemmi niður á Lækjartorg. Forsvarsmenn göngunnar eru unglingsstúlkur á aldrinum 13 til 15 ára. Meðal þeirra er Þóra Silja Hallsdóttir. Vísir tók viðtal við hana í miðri göngunni og átti fréttamaður í stökustu vandræðum með að heyra í henni fyrir fagnaðarlátum allt í kring. „Þetta er alveg geðveikt!" hrópaði Þóra sem ásamt Lovísu Þóru, Guðrúnu Brynju, Anítu Rós Þorsteinsdóttur og Auði Ívarsdóttur, standa að Justin Bieber skrúðgöngunni. Tilgangurinn er að biðla til goðsins um að koma til Íslands og syngja fyrir íslenska aðdáendur, sem engin vöntun er á miðað við mætingu. Þóra sagði að myndir og myndbönd af göngunni yrðu send á Twitter og Facebook-síðu kappans í von um að hann bregðist við ákalli ungmennanna. „Við vonum að hann komi!" hrópaði Þóra áður en hún hélt áfram að hrópa slagorð eins og „Við viljum Bieber!". Nánar verður fjallað um framtakið í fréttum stöðvar 2 í kvöld.
Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Innlent Fleiri fréttir Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Sjá meira