Strumparnir sagðir á bakvið hlutabréfahrunið 14. ágúst 2011 10:51
Þeir eru litlir, bláir og sætir og sem stendur eru þeir mjög óvelkomnir, eða persona non grata, á Wall Street. Margir telja, að vísu meir í gamni en alvöru, að Strumparnir séu ástæðan fyrir hlutabréfahruninu á Wall Street uppúr síðustu mánaðarmótum. Viðskiptafréttasíður greina frá þessu máli. Það voru Strumparnir, þ.e. þrír leikarar í gervi þeirra, sem hringdu opnunarbjöllunni í kauphöllinni á Wall Street föstudaginn 29. júlí s.l. Þetta var liður í að kynna nýjustu Strumpamyndina. Markaðurinn þennan dag endar í mínus. Sömu sögu er að segja næstu daga eftir þessa helgi og fimmtudagur 4. ágúst endar með 5% falli Dow Jones vísitölunnar, því versta síðan í fjármálakreppunni 2008. Daginn eftir missa Bandaríkin topplánshæfiseinkunn sína. Þá hefst mikil rússíbanareið á mörkuðum um allan heiminn. Í frétt vefsíðunnar e24.no er vitnað í bandarískan álitsgjafa sem útskýrir þátt Strumpanna á þann hátt að þeir séu jú kommúnistar. Þjóðfélag þeirra byggist á samvinnu í efnahagsmálum. Þar að auki séu þeir með einræðisherra sem leiðtoga. Álitsgjafinn er þar að tala um Gamlastrump. Á vefsíðunni segir að þessi kenning sé að sjálfsögðu grín en þar sem enginn hefur getað spáð fyrir um sveiflurnar á mörkuðum undanfarið hefur hún orðið vinsæl meðal fjárfesta.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira