Apple gæti tvöfaldað markaðshlutdeild sína með iPhone 5 2. ágúst 2011 15:31 iPhone 4 Mynd úr safni
Talið er að Apple, sem framleiðir iPhone-símana, muni tvöfalda markaðshlutdeild sína þegar nýjasti síminn frá þeim kemur út í september. Þetta kemur fram í grein rannsakandans Gene Munster, sem vinnur hjá fyrirtækinu Piper Jaffray. Niðurstöður úr rannsókn 216 farsímaeigenda benda til þess að mikil eftirspurn sé eftir iPhone 5 - bæði hjá núverandi iPhone-eigendum og hjá þeim sem eiga aðrar gerðir af smartsímum. Um 29 prósent af 216 þátttakendunum áttu iPhone síma og 17 prósent áttu Android síma. Um 28 prósent áttu BlackBerry en restin var með aðrar gerðir af símum. 94 prósent af núverandi iPhone-eigendum sögðust ætla að kaupa sér nýjustu gerðina í september. 42 prósent af Android-eigendum ætla að skipta yfir í iPhone þegar nýi síminn kemur út. Ef niðurstöður eru skoðaðar út frá öllum þátttakendunum, óháð því hvernig síma þeir eiga núna, ætla 64 prósent þeirra að kaupa sér iPhone þegar þeir kaupa sér næst nýjan síma og 60 prósent af þátttakendunum ætla að kaupa sér nýju útgáfuna í september. Ef tekið er mark á niðurstöðum úr könnunni, má gera ráð fyrir að fyrirtækið selji allt að 22 milljón iPhone 5 í september.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira