Fegurðardrottning dæmd í fangelsi fyrir innherjasvik 21. júlí 2011 09:21
Fegurðardrottningin fyrrverandi Daniella Chiese hefur verið dæmd í 30 mánaða fangelsi fyrir aðild sína að því sem kallað hefur verið stærsta innherjasvikamál í sögu Bandaríkjanna. Málið var höfðað gegn milljarðamæringnum Raj Rajaratnam og félögum hans sem stunduðu umfangsmikil innherjasvik í gegnum vogunarsjóðinn Galleon. Daniella kom upplýsingum til Galleon frá yfirmanni sínum í öðrum vogunarsjóði. Daniella vakti athugli í réttarhöldunum þegar hún sagði að tilfinningin við innherjasvik væri á borð við góða fullnægingu. Lögmaður hennar notaði þá vörn að Daniella hefði flækst í "eitrað" kynlífssamband við yfirmann sinn en rétturinn tók þá skýringu ekki til greina. Yfirmaðurinn, Mark Kurland, var dæmdur í 27 mánaða fangelsi í sama máli. Fram að þessu hafa 46 manns lýst yfir sekt sinni í málinu.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira