Metfjöldi árása sjóræningja í ár 15. júlí 2011 09:21
Metfjöldi árása sjóræningja á skip varð á fyrri helmingi þessa árs. Alls voru skráðar 266 árásir sem er 36% aukning frá sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í skipatímaritinu Lloyd´s List og byggir á tölum frá International Maritime Bureau. Nær tveir þriðju af öllum þessum árásum eiga sér stað undan ströndum Sómalíu en sjóræningjar eru einnig athafnasamir fyrir utan strendur Indónesíu, Malasíu, Singapore og suðurhluta Kína. Sjóræningjar eru skipaútgerðum dýrkeyptir. Í lok júní voru 20 skip í haldi þeirra og um 420 skipverjar voru í haldi sem gíslar. Hvað einstök skipafélög varðar má nefna að Mærsk í Danmörku telur að sjóræningjastarfsemi muni kosta félagið um 200 milljónir dollara í ár, eða rúmlega 23 milljarða kr., ef þróunin heldur áfram eins og verið hefur. Hér er aðeins verið að tala um tapið vegna sjóræningja í Sómalíu. Kostnaðurinn liggur að stórum hluta í að Mærsk hefur neyðst til að nota lengri skipaleiðir til að komast hjá því að sigla framhjá Sómalíu.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira