Birgir Leifur náði 3.-4. sæti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2011 13:21 Birgir Leifur Hafþórsson. Nordic Photos / Getty Images
Birgir Leifur Hafþórsson náði frábærum árangri á móti í Áskorendaröð Evrópu sem fór fram í Toskaníuhéraði á Ítalíu um helgina. Hann endaði í 3.-4. sæti og hlaut fyrir það 1,6 milljónir króna í verðlaunafé. Þetta er besti árangur Birgis Leifs í langan tíma en hann var lengi frá vegna meiðsla. Í dag lék hann á samtals 68 höggum en hann átti frábærar fyrri níu holur og var þá efstur ásamt Anthony Snobeck frá Frakklandi. Birgir Leifur gaf svo eftir á síðari níu en Snobeck gaf hvergi eftir og vann sigur á mótinu. Hann var á samtals tólf höggum undir pari en Birgir Leifur á tíu höggum undir pari. Chris Lloyd frá Englandi varð annar á ellefu undir pari en Svíinn Leif Westerberg deildi þriðja sætinu með Birgi Leif. Birgir Leifur fékk þrjá fugla á fyrri níu, þrjá á seinni en þá fékk hann einnig þrjá skolla.
Golf Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira