Lífið

Prinsessan greinilega sátt við brúðkaupsnóttina

MYNDIR/Cover Media
Ef meðfylgjandi myndir, sem teknar voru af Vilhjálmi Bretaprins, 28 ára, og Katrínu Middelton, 29 ára, á laugardag, yfirgefa Buckingham höll, eru skoðaðar líta þau út fyrir að vera í sjöunda himni eftir brúðkaupið þeirra sem fram fór í Westminster Abbey í gær að viðstöddu fjölmenni.

Þá má einnig sjá þyrluna sem flaug með hjónakornin burt frá Bretlandi á ónefndan stað þar sem þau ætla að eyða helginni saman í myndasafni en mikil leynd hvílir yfir ferðinni og veit prinsessan sjálf ekki hvert skal haldið. Hjónin vonast til þess að fjölmiðlar láti þau í friði á meðan á ferðinni stendur, eftir að hafa verið í sviðsljósinu undanfarnar vikur.

Opinberu brúðkaupsmyndirnar sem teknar voru af þeim eftir athöfnina má einnig skoða í myndasafni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.