Deutsche Bank tapaði 9 milljörðum á Actavis 29. apríl 2011 08:31
Deutsche Bank bókfærði 55 milljón evra eða um 9 milljarða kr. tap vegna Actavis á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta kemur fram í umfjöllun Bloomberg fréttaveitunnar um uppgjör Deutsch Bank fyrir ársfjórðunginn sem reyndist töluvert yfir væntingum sérfræðinga. Í frétt Bloomberg segir að fjárfestingardeild Deutsche Bank í fyrirtækjum hafi skilað tapi upp á 165 milljónir evra og er tapið af Actavis því þriðjungur af þeirri upphæð. Stefan Krause fjármálastjóri Deutsche Bank segir að Actavis Group ætti að skila viðunandi niðurstöðu úr rekstri sínum á þessu ári en fyrirtækið var endurskipulagt í fyrra og komst þá að mestu í eigu bankans. Hvað rekstur Deutche Bank í heild varðar á fyrsta ársfjórðungi ársins skilaði bankinn hagnaði upp á 2,1 milljarð evra eftir skatta. Þetta er annar mesti hagnaður á ársfjórðungi í sögu bankans. Sérfræðingar höfðu hinsvegar gert ráð fyrir 1,8 milljarða evra hagnaði.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira