Stærsti eigandi Norðuráls í risavaxinni markaðsskráningu 11. apríl 2011 11:05
Hrávörurisinn Glencore International, stærsti eigandi Century Aluminium móðurfélags Norðuráls, stefnir að markaðsskráningu í kauphöllina í London. Um yrði að ræða þriðju stærstu markaðsskráningu í sögu Evrópu. Fjallað er um málið í Financial Times. Þar segir að Glencore hyggist setja 20% af hlutafé sínu á markaðinn í London en markaðsverðmæti þess hlutar er talið nema um 11 milljörðum dollara eða rúmlega 1.200 milljarða kr. Í heild er markaðsvirði Glencore samkvæmt þessu hátt í 60 milljarðar dollara. Fram kemur í Financial Times að um verði að ræða þriðju stærstu markaðsskráningu í sögu Evrópu. Aðeins Deutsche Telekom og hið ítalska Enel voru stærri. Glencore starfar einkum sem hrávörumiðlari og í námuvinnslu en meðal eigna þess er 49% hlutur í Century Aluminium sem svo aftur er eigandi Norðuráls í Grundarfirði. Glencore var upphaflega stofnað af Mark Rich fyrir tæpum 40 árum síðan. Hann neyddist til að selja félaginu meirihluta sinn á miðjum tíunda áratugnum eftir að hafa tapað gífurlega á tilraun til að einoka zink-markaðinn. Rich komst í sviðsljós fjölmiðla árið 2001 þegar Bill Clinton þáverandi forseti Bandaríkjanna náðaði hann af ýmsum fjármálaglæpum sem hann hafði verið dæmdur fyrir. Talið er að Rich ráði enn öllu því sem hann vill ráða innan Glencore enda voru allir núverandi stjórnendur félagsins í „innri klíku“ Rich þegar hann átti enn meirihlutann í Glencore.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira