Fótbolti

Byrjunarlið Íslands í Úkraínu í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðlaugur Victor er í íslenska liðinu í kvöld.
Guðlaugur Victor er í íslenska liðinu í kvöld.
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska U-21 árs landsliðsins, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir vináttulandsleikinn gegn Úkraínu í kvöld.

Leikurinn fer fram á Valeriy Lobanovskyy-leikvanginum í Kænugarði.

Eyjólfur stillir upp í leikkerfinu 4-1-4-1:

Markvörður: Haraldur Björnsson

Hægri bakvörður: Guðlaugur Victor Pálsson

Vinstri bakvörður: Þórarinn Ingi Valdimarsson

Miðverðir: Hólmar Örn Eyjólfsson og Elfar Freyr Helgason

Varnartengiliður: Bjarni Þór Viðarsson

Tengiliðir: Andrés Már Jóhannesson og Almarr Ormarsson

Hægri kantur: Aron Jóhannsson

Vinstri kantur: Kristinn Steindórsson

Framherji: Björn Bergmann Sigurðarson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×