FT: Hagnaður Iceland Foods 35 milljarðar í fyrra 25. febrúar 2011 08:21
Samkvæmt frétt á vefsíðu Financial Times er reiknað með að verslunarkeðjan Iceland Foods hafi hagnast um 190 milljónir punda eða rúmlega 35 milljarða kr. í fyrra. Sem kunnugt er af fréttum heldur skilanefnd Landsbankans á 66% hlut í Iceland og Glitnir á 10%. Tilkynnt verður um afkomu Iceland í mars n.k. en þá lýkur reikningsári keðjunnar. Hagnaðurinn í fyrra er nokkur meiri en árið áður þegar hann nam 180 milljónum punda. Financial Times segir að þessar afkomutölur sýni sterka stöðu Iceland á krepputímum. Hinsvegar kemur fram á vefsíðunni að stjórn Iceland áformi að greiða eigendum sínum 100 milljónir punda eða 18,7 milljarða kr. í arð í ár. Fyrstu fregnir af þessari arðgreiðslu, sem greint frá hér á visir.is voru að arðgreiðsla þessi næmi 330 milljónum punda. Fjallað er um fyrirhugaða sölu á Iceland en Financial Times segir að ef keðjan fari á uppboð sé líklegt að aðrar breskar stórmarkaðakeðjur hefðu áhuga á að kaupa Iceland. Þetta helgast af því að um yrði að ræða síðustu stóru dagvöruverslanakeðjuna sem færi í sölu á Bretlandseyjum. Sem stendur rekur Iceland 750 verslanir á Bretlandseyjum. Þar af var 71 ný verslun opnuð í fyrra á vegum Iceland.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira