Umfjöllun: Létt verk og löðurmannlegt hjá Keflavík Elvar Geir Magnússon í Keflavík skrifar 1. apríl 2010 20:47 Hörður Axel Vilhjálmsson.
Keflavík er komið í undanúrslit Iceland Express-deildarinnar eftir að hafa unnið Tindastól örugglega í oddaleik í Toyota-sláturhúsinu í kvöld 107-78. Keflvíkingar hertu tökin í öðrum leikhluta og gestirnir áttu aldrei möguleika eftir það. Stemningin var góð á leiknum enda Joey Drummer mættur með trommusveitina og þá var rútuferð frá Sauðárkróki og dágóður fjöldi áhorfenda á bandi gestaliðsins. Þeir létu vel í sér heyra til að byrja með en minna fór fyrir þeim eftir því sem á leikinn leið. Stólarnir byrjuðu leikinn af krafti en heimamenn voru með þriggja stiga forystu að loknum fyrsta leikhluta. Í upphafi annars leikhluta jafnaði Tindastóll og jafnræði var með liðunum. Þá spíttu Keflvíkingar í lófana og réðu lögum og lofum fram að hálfleik. Hörður Axel Vilhjálmsson og Sigurður Þorsteinsson voru báðir í miklum ham hjá heimamönnum og varnarfráköst Draelon Burns voru mikilvæg en Cedric Isom dró vagninn fyrir gestina. Staðan 49-35 í hálfleik. Eftir hlé var þetta aldrei spurning. Öll tök voru heimamanna sem voru 24 stigum yfir fyrir síðasta fjórðunginn og bara formsatriði að klára leikinn. Þeir unnu á endanum 29 stiga sigur og mæta Njarðvíkingum í undanúrslitum. Keflvíkingar eru einfaldlega of sterkir fyrir Stólana, hafa mun meiri breidd og spiluðu flotta vörn sem var lykillinn að sigrinum í kvöld. Stólarnir eru því komnir í sumarfrí. Sigurður Þorsteinsson var stigahæstur í annars jöfnu liði Keflavíkur, skoraði 21 stig og tók 6 fráköst. Urule Igbavboa skoraði 18 stig og tók 6 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson var með 16 stig, Draelon Burns 14 og tók 8 fráköst og þá skoraði Jón Nordal Hafsteinsson 12 stig. Helgi Rafn Viggóson Cedric Isom fóru fyrir liði gestana. Helgi gerði 24 stig og Isom 17 stig og tók að auki 9 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Sjá meira