Stóra kókaínmálið til ákæruvaldsins 16. júní 2010 04:30 milljónir Lögregla lagði hald á níu milljónir við rannsókn málsins.
Rannsókn lögreglu á umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands í apríl er lokið. Tvö lögregluembætti, á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, hafa farið með rannsóknina. Suðurnesjahluti málsins hefur verið sendur til ríkissaksóknara og fíkniefnadeildin á höfuðborgarsvæðinu er að senda hinn hlutann til ákæruvaldsins þessa dagana. Sex manns eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins, einn að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum og fimm að kröfu lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Það var helgina 10. til 11. apríl sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm fyrstu mennina vegna málsins. Maður og kona voru svo handtekin vegna málsins á Keflavíkurflugvelli á sama tímabili. Fólkið hafði reynt að smygla samtals rúmlega þremur kílóum af mjög sterku kókaíni í ferðatöskum til landsins frá Spáni. Við rannsókn málsins fann lögregla átta milljónir króna í tveimur aðskildum bankahólfum. Í öðru hólfinu voru að auki skartgripir sem gullsmiðir hafa metið á rúmar tvær milljónir. Um var að ræða hringa og annað skart. Munirnir voru fáir en fokdýrir. Að auki var svo einn hinna handteknu með rúmlega eina milljón króna í umslagi.- jss
Fréttir Innlent Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Fleiri fréttir Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Sjá meira