Þunnur þrettándi á G20 fundinum 12. nóvember 2010 11:25
Leiðtogar G20 ríkjanna hafa samþykkt útþynnta ályktun um að aðildarríkin eigi að vera á varðbergi gagnvart hættulegu ójafnvægi í viðskiptum sín í millum. Á sama tíma er lítið gert af hálfu G20 til að fullvissa fjárfesta um að heimurinn sé orðinn tryggari gagnvart efnahagslegum hamförum. Þetta kemur fram í frétt um málið á Reuters. Þar segir að fundurinn hafi ákveðið óljósar leiðbeiningar um hvað felist í fyrrgreindu ójafnvægi og hafi í raun tekið sér leikhlé fram á næsta ár þar sem smáatriðin verða ákveðin. Ljósið í myrkrinu er að svo virðist sem gjaldmiðlastríði því sem geysað hefur verði hætt. Allavega lofuðu leiðtogarnir því að fara ekki í veikingu á gjaldmiðlum sínum til að auka samkeppnishæfi hagkerfa sinna. Gengi gjaldmiðla eigi að ráðast á frjálsum markaði Hvað gjaldmiðlastríðið varðar hefur það einkum geysað milli Kína og Bandaríkjanna en þeir síðarnefndu hafa lengi ásakað Kínverja um að halda gengi síns gjaldmiðils niðri með handstýringu. Nú hafa Kínverjar ásakað Bandaríkjamenn mun að veikja gengi dollarans meðvitað með því að setja seðlaprentsmiðjur sínar á fullt með loforði um að nota 600 milljarða dollara til skuldabréfakaupa. Samkvæmt Reuters reyndu Bandaríkjamenn og Kínverjar að grafa stríðsöxina á fundinum en ekkert fast í hendi liggur þó fyrir í þeim efnum.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira