SFO hefur lokið rannsókn á JJB Sports og Sports Direct 19. október 2010 09:18
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar eða Serious Fraud Office (SFO) hefur lokið rannsókn sinni á viðskiptum JJB Sports og Sports Direct. SFO ákvað að gefa ekki út ákærur en segir í tilkynningu að rannsókn á einstaklingum sem tengdust þessum viðskiptum og fyrirtækjum haldi áfram. Í tengslum við þessa rannsókn fór SFO, ásamt mönnum frá embætti sérstaks saksóknara á Íslandi, í húsleitir á skrifstofur Exista og Bakkavarar í Bretlandi, það er í London og Lincoln-héraði í janúar s.l Í frétt um málið á visir.is frá 26. janúar segir að starfsfólk sérstaks saksóknara ásamt starfsfólki Serious Fraud Office í Bretlandi gerði húsleit hjá Exista klukkan níu í morgun samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Rannsókn sérstaks saksóknara beinist að hlutafjárhækkun Exista í desember 2008 og viðskiptum með hluti Exista í Bakkavör. Rannsókn Serious Fraud Office beindist að viðskiptum með hluti Exista í JJB Sports. Chris Ronnie, fyrrum forstjóri JJB Sports, er áfram til rannsóknar vegna gruns um ólöglegan flutning á eignarhlut sínum í verslunarkeðjunni til Kaupþings, en þann hlut áttu Ronnie og Exista saman. Þá var einnig verið að rannsaka falsaða risnureikninga, hugsanlegan þjófnað á eigum verslunarkeðjunnar og leka á upplýsingum úr bókhaldi hennar áður en milliuppgjör var birt í september 2008. Eignarhaldsfélag í eigu Chris Ronnie skuldaði Kaupþingi á Íslandi tæpa 30 milljarða þegar það fór á hausinn í janúar síðastliðnum. Þá var efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar einnig að rannsaka meint samráð á milli JJB Sports og verslunarkeðjunnar Sports Direct International.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira