Ágúst: Við erum með marga leikmenn sem geta skorað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2010 22:34 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, var að sjálfsögðu ánægður með öruggan þrettán stiga sigur á heimavelli deildarmeistaranna í KR í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna í kvöld. „Þeim gekk mjög vel að dekka Koren og klippa hana alveg úr leiknum og það voru aðrir sem stigu fram," sagði Ágúst og það skipti heldur ekki máli að pólski miðherjinn Julia Demirer var lítið inn í leiknum framan af. „Julia var heldur ekki að fá boltann nægilega mikið og þær reyndu að stíla inn á það að breyta okkar leik. Okkar styrkleiki er meðal annars sá að við erum með marga leikmenn sem geta skorað og það sýndi sig í kvöld þar sem það eru fjórir leikmenn hjá okkur yfir fjórtán stig og sá fimmti er með níu stig. Kaninn okkar er síðan bara að skora tvö stig og hún gæti þess vegna sett 30 stig í næsta leik," sagði Ágúst. „Núna lítur þetta bara út fyrir okkur eins og nýtt einvígi þar sem þarf að vinna tvo leiki. Við fögnum þessu í kvöld en svo reynum við að koma okkur niður á jörðina á morgun og reyna að undirbúa okkur fyrir næsta leik. Það er fullt sem við þurfum að laga og auðvitað þurfum við að vinna í því hvernig við ætlum að koma Koren inn í leikinn. Við förum í það um helgina," sagði Ágúst en leikur tvö er í Hveragerði á mánudagskvöldið.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira