Klámmyndasýningar þurfa að bera fullan vsk í Belgíu 19. mars 2010 13:15
Evrópudómstóllinn hefur fellt dóm í máli klámbíóeigenda í Ghent í Belgíu gegn belgískum stjórnvöldum. Samkvæmt dóminum eiga sýningar á myndum hans að bera fullan virðisaukaskatt (vsk) eins og aðrar vörur.Samkvæmt frétt um málið á BBC rak eigandinn kynlífssjoppuna The Erotic Cinema þar sem gestum var boðið að horfa á klámmyndir í einkabásum. Eigandinn vildi síðan að sýningarnar féllu undir menningarstarfsemi og ættu því aðeins að bera 6% vsk eins og aðrar kvikmyndir í almennum bíóhúsum. Almennur vsk er hinsvegar 21% í Belgíu.Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að það sem væri í boði í The Erotic Cinema gæti ekki fallið undir menningarstarfsemi á sama hátt og almennar kvikmyndir. Dómstóllinn segir að til að hægt væri að flokka klámmyndasýningar The Erotic Cinema sem menningu þurftu þær að vera öllum opnar en ekki eitthvað sem væri horft á í einkabásum.Málið nær aftur til ársins 2004 þegar eigandinn gerði kröfu um að borga aðeins 6% vsk af klámmyndasýningum sínum. Síðan fór málið í gegnum öll dómstigin í Belgíu og Evrópudómstólinn næstu sex árin.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira