Manchester United gefur út 500 milljóna punda skuldabréf Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. janúar 2010 21:24 Sir Alex Ferguson. Mynd/ AFP.
Knattspyrnufélagið Manchester United ætlar að fara í 500 milljóna punda skuldabréfaútgáfu til þess að endurfjármagna skuldir sínar. Upphæðin samsvarar 100 milljörðum íslenskra krónaÍ frétt á vef Daily Telegraph segir að miklar vaxtagreiðslur sligi félagið. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir hins vegar að skuldirnar og burðir hans til að kaupa nýja leikmenn séu óháð mál. „Ég hef aðgang að öllu því fjármagni sem ég þarf. Peningarnir eru fyrir hendi og ef ég vildi kaupa einhvern þá gæti ég fengið peninginn," segir Ferguson. Núverandi eigendur Manchester United, Glazer fjölskyldan, keypti félagið á 790 milljónir punda árið 2005.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira