Íbúar Suður-Afríku fagna 12. febrúar 2010 05:00 Fjölmenni fagnaði fyrir utan fangelsið í Höfðaborg þar sem Mandela dvaldi undir lok 27 ára fangavistar sinnar.fréttablaðið/ap
Suður-Afríkubúar fögnuðu í gær með Nelson Mandela, fyrrverandi forseta landsins, að rétt tuttugu ár voru liðin frá því hann var látinn laus eftir 27 ára fangavist. Þúsundir manna lögðu leið sína að fangelsinu í Höfðaborg, þar sem Mandela var hafður í haldi síðustu vikurnar. „Þegar Mandela var leystur úr haldi vissum við ekki hvað ætti eftir að gerast,“ sagði Nontuntuzelo Faku, sem var í hópnum. Nú, tuttugu árum síðar, hefur margt breyst. Einungis fjórum árum eftir að Mandela varð frjáls voru haldnar fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu. Samtök hans, Afríska þjóðaráðið, sem höfðu barist fyrir afnámi aðskilnaðarstefnu hvíta minnihlutans, komust til valda og Mandela varð forseti. Aðstæður þeldökkra íbúa landsins hafa síðan batnað mjög þótt enn sé við erfið vandamál að glíma. „Við vissum að frelsi hans þýddi að frelsi okkar væri einnig komið,“ sagði Cyril Ramaphosa, einn af forystumönnum Afríska þjóðaráðsins. Jacob Zuma, núverandi forseti Suður-Afríku, flutti árlega stefnuræðu sína á þingi í gær, og valdi daginn sérstaklega vegna þessa tilefnis. - gb
Suður-Afríka Mest lesið Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Innlent Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Erlent Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES Innlent Launmorð á götum New York Erlent Konfektið í hæstu hæðum Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Innlent Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Erlent Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Rútuslys austan við Hala í Suðursveit Innlent Fleiri fréttir Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Franska ríkisstjórnin fallin Ákæra forsetann formlega vegna herlaga Launmorð á götum New York Combs kærður fyrir að hafa látið konu hanga fram af svölum Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Herlögin loks felld úr gildi Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Óvissa þrátt fyrir að þingið hafi fellt neyðarlögin úr gildi Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Sjá meira