Gjaldþrota auðmannabanki átti aðeins 40 viðskiptavini 8. apríl 2010 10:32 Capinordic Bank hefur þegar kostað innistæðutryggingasjóð Danmörku um 800 milljónir danskra kr. eða rúmlega 18 milljarða kr.
Hinn gjaldþrota danski auðmannabanki (rigmandsbank) Capinordic Bank átti aðeins 35 til 40 viðskiptavini í Danmörku. Nær allir þessir viðskiptavinir tilheyrðu svokölluðum milljarðamæringaklúbb landsins en meðal þeirra voru Erik Damgaard, Aldo Petersen, Peter Forchammer og Ole Vagner.Stór hluti af þessum auðmönnum voru síðan aftur meðeigendur að fjármálafyrirtækinu Capinordic, sem var móðurfélag bankans þar til hann varð gjaldþrota í febrúar s.l.Í umfjöllun um málefni Capinrodic Bank í blaðinu Börsen í vikunni segir að féið sem bankinn lánaði þessum viðskiptavinum kom að nær öllu leyti frá útibúum bankans í Svíþjóð. Þar rak hann harðskeytta markaðssetningu með tilboðum um hærri vexti en aðrir og tókst að fá sænskan almenning til að leggja um milljarð danskra kr. inn á innlánsreikninga í bankanum. Þetta fé var síðan lánað til fyrrgreindra viðskiptavina.Í Börsen kemur fram að viðskiptavinirnar hafi notað lánin til að fjárfesta í ráðstefnuhöllum, fasteignum og orkufyrirtækjum. Engir aðrir en fyrrgreindur 40 manna hópur hafði aðgang að lánunum þessum en veðin fyrir þeim voru oft vafasöm, m.a. voru þau tekin í eignum sem viðkomandi hafði þegar veðsett öðrum fjármálastofnunum í Danmörku.Fram kemur í umfjöllun Börsen að gjaldþrot Capinordic Bank hafi þegar kostað innistæðutryggingasjóð Danmörku um 800 milljónir danskra kr. eða rúmlega 18 milljarða kr. Þann reikning mun sjóðurinn svo senda áfram til annarra banka í Danmörku.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira