Haukar og Keflavík geta bæði komist í undanúrslitin í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2010 16:30 Kristi Smith og Helena Hólm geta komist áfram í úrslitakeppninni með liðum sínum í kvöld. Mynd/Daníel
Haukar og Keflavík geta tryggt sér sæti í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í kvöld. Bæði lið komust í 1-0 um helgina í einvígum sínum í sex liða úrslitum en það lið kemst áfram sem fyrr vinnur tvo leiki. Bikarmeistarar Hauka taka á móti Grindavík á Ásvöllum klukkan 19.15. Haukar unnu 88-82 sigur í hörkuleik í Grindavík á laugardaginn þar sem Heather Ezell átti enn einn stórleikinn. Heather Ezell var með 35 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar í leiknum en hún hefur skorað mest að meðaltali gegn Grindavík á þessu tímabili af öllum liðum deildarinnar. Snæfellskonur taka á móti Keflavík í Stykkishólmi í fyrsta heimaleik kvennaliðs félagsins í úrslitakeppni. Keflavík vann fyrri leikinn 95-82 eftir jafnan leik en Keflavík tryggði sér sigurinn með því að vinna síðustu fimm mínútur leiksins 26-10. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 32 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar fyrir Keflavík í leiknum. KR og Hamar komust beint inn í undanúrslitin með því að enda í tveimur efstu sætunum í A-deildinni. KR mætir því liði sem endaði neðar í töflunni af þeim liðum sem tryggja sér sigur í sex liða úrslitunum. Klári Haukar og Keflavík sína leiki í kvöld þá munu sem dæmi KR-Haukar og Hamar-Keflavík mætast í undanúrslitunum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira