Tony og Ridley Scott vilja annast rekstur MGM 9. apríl 2010 08:55 Ridley Scott og bróður hans Tony vilja annast rekstur MGM.
Bræðurnir Tony og Sir Ridley Scott hafa óvænt blandað sér í slaginn um kvikmyndaverið MGM sem er til sölu þessa dagana. Þeir bræður hafa lagt fyrir kröfuhafa MGM áætlun um endurskipulagningu kvikmyndaversins og hugmyndir sínar um rekstur þess.Fjallað er um málið í Financial Times en Tony og Ridley eiga að baki margar þekktar myndir eins og Alien, Top Gun og Gladiator. MGM er nú í höndum kröfuhafa en kvikmyndaverið skuldar um 3,7 milljarða dollara og getur ekki lengur staðið við afborganir af þeim skuldum.Eins og áður hefur verið greint frá hefur Time Warner þegar lagt fram tilboð í MGM sem hljóðar upp á 1,5 milljarða dollara og er Time Warner hæstbjóðandi enn sem komið er. Hinsvegar munu kröfuhafarnir hafa meiri áhuga á að breyta kröfum sínum í hlutafé og leggja MGM síðan til rekstrarfé í stað beinnar sölu.Þeir bræður Tony og Ridley reka sitt eigið kvikmyndaver undir nafninu Scott Free en ekki liggur ljóst fyrir hvort áætlanir bræðranna geri ráð fyrir að það verði sameinað MGM eða ekki.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira