Forseta bjargað frá lögreglu 2. október 2010 00:30 Átök í Ekvador Forsetinn sagðist í gær ætla að sjá til þess að lögreglumönnunum verði harðlega refsað.nordicphotos/AFP
Umsátursástand ríkti í Ekvador í gær eftir að her landsins hafði bjargað Rafael Correa forseta af sjúkrahúsi, þar sem hópur lögreglumanna hafði umkringt hann og haldið honum föngnum í tólf klukkustundir. Correa hafði verið fluttur á sjúkrahúsið eftir að hafa nærri kafnað af völdum táragass þegar hann og stuðningsmenn hans lentu í átökum við lögreglumenn á fimmtudag. Stuðningsmenn hans höfðu kastað grjóti í áttina að lögreglumönnunum, sem brugðust við með því að beita táragasi. Að minnsta kosti þrír menn létu lífið í átökunum, tveir hermenn og einn lögreglumaður. Í gær voru hermenn á hverju horni að gæta þess að átök brytust ekki út. Lögreglumennirnir sögðust vera að mótmæla nýjum lögum, sem skerða kjör opinberra starfsmanna. Correa og ráðherrar í ríkisstjórn hans sögðu lögreglumennina hins vegar hafa reynt að steypa forsetanum af stóli. Bæði Hugo Chavez og Evo Morales, forsetar Venesúela og Bólivíu, sökuðu Bandaríkin um að standa að baki lögregluuppreisninni í Ekvador.- gb
Fréttir Mest lesið Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Veður „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sjá meira