Fleiri samningar til að koma í veg fyrir skattsvik 24. mars 2010 14:15
Norðurlöndin hafa gert upplýsingaskiptasamninga um skattamál við St.Vincent og Grenadineyjar, St. Kitts og Nevis. Samningurinn er liður í verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar með það að markmiði að koma í veg fyrir skattaundanskot.Fjallað er um málið á vefsíðunni norden.org. Þar segir að upplýsingaskiptasamningurinn mun veita norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla einstaklinga sem reyna að komast hjá því að greiða skatt af tekjum og fjárfestingum. Að auki auðveldar samningurinn aðgang að innstæðum sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu.Með undirritun samnings við Norðurlöndin skuldbinda St.Vincent og Grenadineyjar, St. Kitts og Nevis sig til að taka upp staðla OECD um gegnsæi og upplýsingamiðlun á skattasviðinu.Norrænu rikin gerðu þann 10. mars samning við Bahamaeyjar og áður höfðu fjölmargir sams konar samningar verið gerðir við ríki með svokölluð skattaskjól. Verkefnið verður áfram ofarlegaá forgangslista ráðherranefndarinnar.Danir hafa á formennskutíma sínum í Norræna ráðherranefndinni 2010 lagt áherslu á áframhaldandi norrænt samstarf til að koma í veg fyrir skattaundanskot. Norðurlöndin hafa samþykkt að halda samstarfinu áfram og er gert ráð fyrir að það standi fram til ársins 2012.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira