Hættulegast í vinnunni milli klukkan 10 og 11 að morgni 10. ágúst 2010 07:17
Ný dönsk könnun sýnir að hættulegasta klukkustundin í vinnunni er á milli klukkan tíu og ellefu á morgnanna. Könnun þessi var unnin af vinnueftirlitinu í Danmörku en samkvæmt henni verða flest vinnuslys á á þessum tíma dagsins eða 13%. Ef tímabilið frá klukkan tíu til hádegis er tekið saman verða um fjórðungur af öllum vinnuslysum í Danmörku á því tímabili. Fjallað er um málið á viðskiptasíðu Berlingske Tidende en þar er haft eftir talsmanni Samtaka iðnaðarins í Danmörku að möguleg skýring á þessu sé að á þessu tímabili séu starfsmenn byrjaðir að huga að hádegisverðarhléi sínu og því ekki eins vakandi við það sem þeir eru að gera. Einnig gæti spilað hér inn í að flestir almennir launþegar í Danmörku mæta í vinnu sína milli klukkan sex og sjö á morgnanna. Þeir hafa því yfirleitt farið á fætur um fimmleytið og eru því orðnir nokkuð þreyttir þegar líður að hádeginu. Hinsvegar eru ekki til neinar opinberar rannsóknir á því afhverju flest vinnuslys í landinu verða á síðustu tveimur tímunum fyrir hádegi.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira