Tölvuþrjótur selur 1,5 milljón persónusíðna af Facebook 26. apríl 2010 15:23 Rick Howard forstjóri Verisign iDefence segir að hafi einhver í höndum aðgangsorð að Facebook síðu þinni er stutt í að viðkomandi geti brotist inn á bankareikning þinn.
Tölvuþrjóturinn Kirllos hefur stolið 1,5 milljón persónusíðna af Facebook og selur þær nú í 1.000 síðna skömmtum. Þetta samsvarar því að fyrir hverjar 300 persónusíður á Facebook hefur Kirllos stolið einni þeirra.Í frétt um málið í Ekstra Bladet segir að netöryggisþjónustan Verisign iDefence hafi rakið slóðina af þessum þjófnaði til Kirolls en hann býður til sölu aðgangsorð að tölvupóstum og önnur lykilorð sem þar kunna að vera til staðar.Sem fyrr segir selur Kirllos þessar upplýsingar í 1.000 eintaka skömmtum. Tvö verð eru í boði eftir því hvort viðkomandi hafi átt 10 vini eða færri á Facebook eða meira en 10 vini. Fyrir 10 vini eða færri þarf að borga 3.200 kr. fyrir skammtinn. Fyrir 1.000 síður með fleiri en 10 vinum hver þarf að borga 5.700 kr.Rick Howard forstjóri Verisign iDefence segir að hafi einhver í höndum aðgangsorð að Facebook síðu þinni er stutt í að viðkomandi geti brotist inn á bankareikning þinn. Hægt er að nota persónulegar upplýsingar á Facebook til að byggja upp aðgang að öðrum viðkvæmum upplýsingum um viðkomandi.Danska netöryggisþjónustan DK-Cert hvetur danska notendur Facebook til þess að skipta út aðgangsorðum sínum á netsíðunni. „Hér er um að ræða verslun milli glæpamanna," segir forstjóri DK Cert. „Við höfum dæmi þar sem aðgangur að tölvupósti hefur leitt til þess að skeyti hafa verið sent til vina viðkomandi um að hann væri í vandræðum erlendis og þyrfti á fé að halda til að komast heim."Enn er ekki vitað hve mikið af hinum stolnu upplýsingum Kirllos hefur komið í verð hingað til.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagur í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira