Gífurleg fjölgun opinberra starfsmanna í Danmörku 23. september 2010 09:36
Gífurleg fjölgun hefur orðið á ráðningum opinberra starfsmanna í Danmörku. Samkvæmt tölum frá hagstofu landsins fjölgaði þeim um 14.500 á öðrum ársfjórðungi ársins m.v. sama tímabil í fyrra. Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að frá árinu 2007 hafi fjöldi opinberra starfsmanna í landinu aukist óvenjumikið eftir að hafa haldist nokkuð stöðugur árin 2002 til 2007 í um 730.000 manns. Þannig hafi fjöldi starfsmannanna aukist um 16.000 árið 2008 og um 18.000 í fyrra. Jacob Graven aðalhagfræðingur Sydbank segir að þessar tölur séu í hrópandi ósamræmi við það sem er að gerast í einkageiranum þar sem störfum hafi fækkað mikið. „Þessi þróun getur ekki staðist og mun hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir fjármál hins opinbera," segir Graven. „Rekstur hins opinbera hefur farið úr því að skila afgangi upp á 80 milljarða króna árið 2007 og yfir í halla upp á sömu upphæð í ár."
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira