Tíundi hver banki vestan hafs í vandræðum 21. maí 2010 14:05
Tíundi hver banki í Bandaríkjum er í fjárhagsvandræðum. Þetta sýna tölur úr uppgjörum í bandaríska bankakerfinu fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs.Fjallað er um málið í Dagens Industri en þar segir að samkvæmt Þessum tölum séu vandamál bandaríska bankakerfisins langr frá því að vera leyst. Tölurnar sýna m.a. að heildarfjöldi þeirra útlána sem ekki hefur verið borgað af í þrjá mánuði eða lengur heldur áfram að aukast. Fjöldi útlána í vanskilum hefur nú aukist milli mánaða sextán mánuði í röð.Þeir bankar sem hér um ræðir eru allir komnir á lista Tryggingarsjóðs innistæðna í Bandaríkjunum (FDIC) yfir banka í vandræðum. Forstjóri FDIC, Sheila Blair segir í samtali við Wall Street Journal að bankarnir séu enn með mörg óleyst vandamál í bókum sínum og ekki sé hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að enn er mikill óróleiki á fjármálamörkuðum heimsins.Um síðustu áramót voru samtals 702 bankar í Bandaríkjunum á fyrrgreindum lista FDIC. Til samanburðar var fjöldi þeirra á listanum 252 árið 2008.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira