Innlent

Skýra þarf betur lög um félagagjöldin

Elías blöndal Lögfræðingur Bændasamtakanna segir ólíklegt að dómur Hæstaréttar um félagagjöld hafi áhrif á búnaðargjald bænda. Skýra þurfi lög um gjaldið betur.
Elías blöndal Lögfræðingur Bændasamtakanna segir ólíklegt að dómur Hæstaréttar um félagagjöld hafi áhrif á búnaðargjald bænda. Skýra þurfi lög um gjaldið betur.

Óvíst er hvort dómur Hæstaréttar um töku félagsgjalds af útgerðarmanni til Landssambands smábátaeigenda sem ekki á aðild að sambandinu hafi áhrif á búnaðargjald sem bændur greiða af búvöruverði til Bændasamtakanna.

„Þrátt fyrir dóm Hæstaréttar er ekki þar með sagt að innheimta búnaðargjalds sé ólögmæt eða brjóti í bága við stjórnarskrá,“ segir Elías Blöndal Guðjónsson, lögfræðingur Bændasamtakanna. Hann bendir á að öll félögin sem fái hlut af búnaðargjaldinu hafi lögboðnum verkum að sinna, svo sem að efla og þróa landbúnað.

Hlutur Landssambands smábátaeigenda af félagagjaldinu er eina tekjulind þess. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær niðurstöðuna geta leitt til þess að sambandið verði að leita sér annarra tekjuleiða.

Búnaðargjaldið fer lögum samkvæmt til búgreinafélaga og Bjargráðasjóðs. Bændasamtökin fengu 105 milljónir króna af gjaldinu í fyrra. Elías segir þetta hluta af nokkrum tekjuleiðum samtakanna.

Endurskoðun á félagagjaldinu hefur lengi legið á borði hins opinbera. Umboðsmaður Alþingis skoðaði réttmæti félagagjalda smábátaeigenda að eigin frumkvæði árið 2001.

Hann mælti með endurskoðun gjaldtökunnar. Starfshópur á vegum forsætisráðuneytis komst að sambærilegri niðurstöðu fyrir tæpum tveimur árum. Þá lýsti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra því yfir á Alþingi í vor í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu að innheimta á iðnaðarmálagjaldi bryti í bága við Mannréttindasáttmála Evrópu, og að gjaldtakan verði skoðuð. Sú vinna stendur enn yfir.

Breytingar á búnaðargjaldi liggja fyrir Alþingi. Elías segir að gera megi ráð fyrir áhrifum dóms Hæstaréttar og Mannréttindadómstólsins á það.

„Það getur vel verið að skýra þurfi lögin betur og herða eftirlitið til þess að gjaldtakan standist stjórnarskrá,“ segir hann.

jonab@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×