Hótel d‘Angleterre býður upp á innkaupaþræl 1. október 2010 13:13 Christine Wedel er kynnt til leiks á heimasíðu hótelsins.
Það er yfirleitt ekki á færi neinna nema þeirra ofurríku að hafa sérstakan innkaupaþræl (personal shopper) í þjónustu sinni.Nú hefur lúxushótelið d'Angleterre í Kaupmannahöfn ákveðið að bjóða gestum sínum upp á þessa þjónustu. Hótelið er komið í eigu skilanefndar Landsbankans eftir gjaldþrot Nordic Partners í fyrra. Í umfjöllun um málið á börsen.dk segir að það sé hin fertuga Christine Wedel sem ráðin hefur verið innkaupaþræll hótelsins. Hún er sögð sjóuð í þessu fag og hefur verið á launaskrá nokkurra ofurríkra einstaklinga og annarra við að annast innkaupin fyrir þá. Börsen segir að Wedel sé eins og sköpuð í þetta starf, sem blaðið segir eitt mesta „glamúr" starfið í Danmörku, vegna gáfna og hæfileika en hún er jafnframt einhver eftirsóttasti stílisti landsins. Víst er að þjónusta Wedel er ekki gefin. Það kostar 7.000 danskar kr., eða 140 þúsund kr., að ráða hana í vinnu í einn dag. Innfalið eru ferðir til Helsingör og heimsóknir á danskt heimili og listasöfn. Hinsvegar má komast af með helmingi minni greiðslu ef aðeins er um að ræða að senda Wedel út að versla fyrir sig.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira