Mælir með því að gullfótur verði tekinn upp 9. nóvember 2010 01:30 robert zoellick Tillaga forstjóra Alþjóðabankans um upptöku gullfótar hefur ekki fallið í kramið. Fréttablaðið/AP
Robert Zoellick, forstjóri Alþjóðabankans, mælir með því að helstu iðnríki heims taki upp gullfót eða aðra viðmiðun fyrir gjaldmiðla landanna. Með gullfæti er átt við það þegar gengi gjaldmiðla er tengt ákveðnu magni af gullforða sem seðlabanki hvers lands þarf að koma sér upp. Slík viðmiðun var við lýði með einum eða öðrum hætti allt frá nítjándu öld og fram til 1971. Zoellick skrifaði um málið í breska dagblaðið Financial Times í gær en þar segir hann gullfótinn geta styrkt trú á gjaldmiðla heimsins eftir kreppuna og dregið úr verðbólgu, sem fylgt hafi fljótandi gengi. Skrif forstjórans komu á óvart í alþjóðlegum fjármálageira í gær og vísuðu margir henni út af borðinu. Jean Claude-Trichet, aðalbankastjóri evrópska seðlabankans, sagði í samtali við fréttastofu Reuters, málið ekki hafa verið rætt á fundi hans með nokkrum af helstu seðlabankastjórum heimsins hjá Alþjóðlega greiðslumiðlunarbankans í Basel í Sviss í gær. „Ég man eftir því að Jim Baker hafi viðrað þessa hugmynd síðast fyrir löngu síðan, þegar hann var fjármálaráðherra Bandaríkjanna á níunda áratugnum. Ég hef ekkert um þetta að segja frekar,“ sagði Trichet. - jab
Fréttir Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Sjá meira