Styrkir Grikkland og Evrópu 11. apríl 2010 10:32 George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands. Mynd/AFP
George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, segir að vegna samkomulags evruríkjanna vegna efnahagserfiðleika Grikklands komi landið sem og Evrópa til með að styrkjast. Grísk stjórnvöld glíma við gífurlegan skuldavanda og kynntu í febrúar umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir sem var mótmælt á götum úti. Forsætisráðherrann viðurkennir að langt sé þangað til að Grikkir komist út úr erfiðleikum sínum. Samkomulag evruríkjanna gefi landinu þó ákveðið svigrúm. Það felur í sér að Grikkjum verði veitt rúmlega 20 milljarða evra lán, en aðeins ef aðrir lánamöguleikar á frjálsum markaði lokist alveg. Matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði fyrir helgi lánshæfieinkunn ríkissjóðs Grikklands úr BBB+ í BBB-.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira