Strikið komið í hóp dýrustu verslunargatna heimsins 28. september 2010 09:26
Strikið í Kaupmannahöfn er komið í hóp 25 dýrustu verslunargatna heimsins. Skipar Strikið þar 23. sætið en þessi þekkta verslunargata hefur ekki áður náð inn á þennan topp 25 lista. Strikið er þar með einnig dýrasta verslunargatan á Norðurlöndunum. Það er fasteignafélagið Cushman & Wakefield sem gefur út árlega skýrslu um dýrstu verslunargötur heimsins. Á listanum má finna 259 götur í 59 löndum en þeim er skipað á listann eftir því hve mikið það kostar að leigja hvern fermetra af verslunarplássi við þær. Það er 5th Avenue í New York sem skipar toppsætið á listanum yfir dýrustu verslunargöturnar. Þar kostar hver fermetri um 2,5 milljónir kr. á ári. Næst á eftir kemur svo Causeway Bay í Hong Kong en þar kostar fermeterinn rúmlega 2,2 milljónir kr. Þessar tvær götur eru þær langdýrustu í heiminum. Í þriðja sæti kemur Ginza í Tókýó en þar er fermeterinn helmingi ódýrari en við Causeway Bay. Samkvæmt Cushman & Wakefield kostar fermeterinn á Strikinu um 330 þúsund kr.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira