Langþráður sigur hjá Njarðvíkingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2010 20:53 Jóhann Árni Ólafsson lék vel í kvöld.
Njarðvík enduðu fimm leikja taphrinu sína í Iceland Express deild karla með þrettán stiga sigri á nýliðum Hauka, 80-67, í Ljónagryfjunni í kvöld. Christopher Smith var með 22 stig og 13 fráköst hjá Njarðvík, Jóhann Árni Ólafsson skoraði 18 stig og Guðmundur Jónsson var með 17 stig. Hinn 19 ára Haukur Óskarsson skoraði 22 stig fyrir Hauka, Gerald Robinson var með 18 stig og 13 fráköst og Semaj Inge var nálægt þrennu með 12 stig, 8 fráköst og 9 stoðsendinar. Njarðvík var með frumkvæðið í fyrri hálfleik, var 21-16 yfir eftir fyrsta leikhluta og með þriggja stiga forskot í hálfleik, 36-33. Gerald Robinson hélt Haukum á floti fram eftir leik en hann skoraði meðal annars 14 af 16 stigum liðsins í fyrsta leikhlutanum. Haukar komust yfir í þriðja leikhluta en aðeins um stund og heimamenn í Njarðvík voru með eins stigs forskot, 55-54, fyrir lokaleikhlutann. Njarðvíkingar voru mun sterkari í lokaleikhlutanum sem þeir unnu 25-13 og lönduðu þar með langþráðum sigri, þeim fyrsta í deildinni síðan 17. október. Njarðvík-Haukar 80-67 (36-33) Stig Njarðvíkur: Christopher Smith 22/13 fráköst/6 varin skot, Jóhann Árni Ólafsson 18/7 fráköst, Guðmundur Jónsson 17/4 fráköst, Lárus Jónsson 7/6 stoðsendingar, Rúnar Ingi Erlingsson 7/4 fráköst, Friðrik E. Stefánsson 6/10 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 2, Páll Kristinsson 1Stig Hauka: Haukur Óskarsson 22, Gerald Robinson 18/13 fráköst, Semaj Inge 12/8 fráköst/9 stoðsendingar, Davíð Páll Hermannsson 10, Emil Barja 4/4 fráköst, Óskar Ingi Magnússon 1
Dominos-deild karla Mest lesið Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Sport Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA Sport Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Enski boltinn Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Viggó færir sig um set á nýju ári Handbolti Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Enski boltinn Fleiri fréttir Ruddi Wembanyama og var rekinn af velli fyrir reiðiskast Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Martin og félagar burstuðu botnslaginn Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Versta frumraun í úrvalsdeild? Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Selfoss fær leikmann sem hefur spilað meira en hundrað NBA leiki „Sást frekar bersýnilega að það er ekki mikið sjálfstraust í liðinu“ „Valsararnir voru bara betri“ „Við þurfum að girða okkur í jólafríinu“ Enn eitt tapið og Martin í minna hlutverki en vanalega Uppgjörið: Valur - Tindastóll 89-80 | Meistararnir upp úr fallsæti „Fyrirgefðu að ég var ekki pabbinn sem þú vildir að ég værir“ Körfuboltakvöld í beinni frá Minigarðinum „Nánast afsökuðu meðdómara sinn“ „Setjið stóra mynd af honum á skjáinn og leyfið fólki að horfa“ „Spiluðum glimrandi vel í sókn“ Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 105-86 | Keflavík fór illa með Jordan-lausa Þórsara „Við þurfum bara að finna lausnir og bæta okkar leik“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 90-100 | Hilmar Smári í ham Uppgjörið: Álftanes - Höttur 89-92 | Ótrúleg endurkoma hjá Hetti „Leikurinn þróaðist eins og við hefðum viljað að hann þróist“ Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum Thelma og Tryggvi best í fyrsta sinn Hornets gaf dreng PlayStation 5 en tók gjöfina síðan til baka Pippen stríddi dómurunum á NBA leik Ho You Fat vill spila áfram á Íslandi: „Ég er að skoða hvað er í boði“ Þorleifur: Þetta er ákveðin skita Uppgjörið: ÍR - Haukar 93-96 | Haukar enduðu sigurgöngu ÍR Haukamaðurinn Ho You Fat í tveggja leikja bann Sjá meira
Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum