Gullverð mun rjúka upp í hæstu hæðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. ágúst 2010 13:48
Búist er við því að verð á gulli muni ná methæðum á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að verðið geti þá komist upp í um það bil 1500 bandaríkjadali á únsu. Hingað til hefur verðið náð hæst upp í 1266 dali. Það gerðist þann 21. júní síðastliðinn. Eugen Weinberg, sérfræðingur hjá Commerzbank AG í Frankfurt, segir við Bloomberg fréttaveituna að verð muni hækka burtséð frá því hvort efnahagsástandið í heiminum batnar eða versnar. „Sterkara hagkerfi mun skapa meiri eftirspurn eftir skartgripum. Ef efnahagsástandið verður hins vegar veikt áfram munu fjárfestar leita eftir meira öryggi," segir Weinberg. Fleiri sérfræðingar taka í sama streng og Weinberg. Þeir bjartsýnustu telja jafnvel að verð á únsunni geti farið upp í allt að 1550 dali.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira